Zuppa di piselli

Piselli súpu smakkaði ég fyrst á litlu krúttlegu kaffihúsi í Lecco. Mitt í íbúðarleit römbuðum við inn á þennan stað sem er líka eini staðurinn í bænum sem býður upp á Matcha latte að mér vitandi. Súpan smakkaðist svo vel í vetrarkuldanum að ég sagði við sjálfa mig að ég yrði að læra að gera þessa súpu. Fyrsta ítalska grænmetis matreiðlubókin “la cucina delle piante” sem mér leist vel á fannst í bókabúðinni á horninu niðrí miðbæ og innihélt hún að sjálfsögðu þessa súpu, sem allar götur síðan hefur verið elduð reglulega. Líkt og venjulega þá er ég búin að breyta örlítið uppskriftinni, en hún er ekki síðri lofa ég. Bæði fyrir okkur og gjarnan fyrir gesti, enda varla hægt að klúðra henni. Já, og svo er hún líka fljótleg. 

Innihald

  • 1 msk ólífu olía
  • 5 skarlottlaukar
  • 1 knippi sellerí 
  • 3 hvítlauksgeirar
  • 1 blaðlaukur
  • 400 g frosnar piselli baunir
  • 900 ml grænmetiskraftur
  • 100 g vætukarsi (eða álíka matjurt)
  • 2 lófar mynta
  • 50 g valhnetur
  • salt og pipar eftir smekk

Aðferð

  1. Skerið grænmetið í bita
  2. Hitið ólífuolíu við miðlungshita
  3. Bætið skalottlauk, hvítlauk og sellerí út í og steikið í 4-5 mínútur. Hrærið reglulega og passið að brúnist ekki
  4. Bætið blaðlauki út í og hrærið þar til verður glærleitur
  5. Setjið baunir ásamt grænmetiskrafti í pottinn og látið sjóða í 5 mínútur
  6. Að lokum bætið þið vætukarsa og eldið í 1 mínútu til viðbótar – skiljið svolítið eftir fyrir skraut
  7. Flytjið rúmlega helminginn af súpunni í blandara ásamt myntunni og maukið þar til súpan verður mjúk, en gætið að hún sé ekki of þykk. 
  8. Setjið allt saman aftur í pottinn og hrærið, saltið og piprið eftir smekk
  9. Berið súpuna fram með söxuðum valhnetum, vætukarsa og góðri ólífuolíu

 

Verði þér að góðu!

Deila uppskrift: