Dr. Lára G. Sigurðardóttir
Hin stórfenglega starfsemi mannslíkamans hefur heillað frá unga aldri. Það var þó ekki fyrr en heilsuleysi í ýmsri mynd fór að taka toll að ég fór að kafa betur í rót sjúkdóma og skoða hvernig við getum lifað ekki bara þokkalegu lífi, heldur notið þess til fulls.
Heimasíða þessi er hugsuð til að halda utan um fræðsluefni sem ég hef unnið að ásamt sérfróðu fólki, uppskriftir sem eru góðar fyrir kroppinn og fleira áhugavert sem hefur orðið á vegi mínum.
Dr. Lára G. Sigurðardóttir
Bók
Í Húðbókinni finnur þú allt sem þú þarft að vita um húðina og lærir hvernig hægt er að viðhalda heilbrigði hennar og ljóma. Fjallað er ýtarlega um hvaða áhrif lífsvenjur og næring hafa á húðina.
Gjafakort
SAMVERA hjálpar þér að skipuleggja samverustundir og gefa það mikilvægasta sem þú átt, tímann þinn. Í Samveruöskjunni eru gjafakort á samverustund með þér. Gjafakortin henta fyrir flest tilefni, s.s. afmæli, útskriftir, vinagjöf eða bara þegar þú vilt gleðja einhvern.
Við leggjum áherslu á að veita faglega og persónulega þjónustu í notalegu andrúmslofti. Á stofunni starfa læknir og hjúkrunarfræðingar sem veita húðmeðferðir sem skila árangri.
Vertu hjartanlega velkomin/n!