Þetta sykurlausa og glúteinlausa bananabrauð slær alltaf í gegn um helgar. Dásamlegt ylvolgt með smjöri. Athugið að þrátt fyrir að það sé enginn viðbættur sykur geta bananar og döðlur hækkað blóðsykurinn.
Undirbúningstími um 10 mín, bökunartími 35-40 mín. Samtals 45-50 mín.
Hitið ofn í 180°C. Setið í blandara mjólk (byrja á hálfum bolla og bæta við ef þurrt), döðlur og hnetusmjör og blandið vel saman þar til silkimjúkt. Bætið síðan chia fræjum og leyfið þeim að liggja í bleyti á meðan restin er kláruð.
Stappið banana á disk og setjið til hliðar.
Bætið þurru innihaldsefnunum í stóra skál og blandið vökvanum úr blandaranum saman við. Bætið bönunum og valhnetum út í og hrærið þar til allt vel blandað saman.
Setjið deigið í brauðform og skreytið með grófsöxuðum valhnetum.
Bakið í u.þ.b. 40-50 mínútur. Viðarprik ætti að koma hreint út eftir að því er stungið í miðju brauðsins.
Kælið áður en þið takið brauðið úr forminu.
Njótið vel!
Deila uppskrift: