Sveppasúpa

Sveppir eru einskonar ofurfæða, þeir eru næringarríkir en hitaeiningasnauðir og hafa verið notaðir sem lyf í þúsundir ára. Þeir innihalda m.a. vítamín B2, B3, B5, B9 (fólat), D og steinefnin fosfórus, kalíum, kopar, magnesíum, selen og sink. Kalíum getur minnkað spennu í æðum og lækkað blóðþrýsting. Glútamat finnst einnig ríkulega í sveppum, en amínósýra þessi styrkir þarmavegginn og minnkar líkur á að óæskileg efni finni leið inn í líkamann gegnum þarmavegginn og ræsi með því ónæmiskerfið. Í heilanum er glútamat eitt mikilvægasta taugaboðefnið sem örvar taugafrumur og gegnir lykilhlutverki í lærdóm, minni og vitsmunagetu. Til að toppa sig þá gefur glútamat einnig hið svokallaða umami bragð sem er gjarnan kallað fimmta bragðskynið (samhliða sætt, súrt, salt og bitur). 

Súpa þessi er afar bragðgóð og meira að segja elska unglingsdrengirnir mínir hana. Hún hentar líka vel fyrir þá sem eru að klást við candida-sýkingu. 

Innihald

  • 1/2 bolli ólífu- eða kókosolía
  • 2 saxaðir laukar
  • 3 saxaðir hvítlauksgeirar
  • 500 gr. saxaðir sveppir (t.d. oyster, eryngi, shiitake)
  • 2 tsk þurrkuð salvía (e. sage)
  • 1 msk paprikuduft
  • 1 msk coconut aminos 
  • 3 bollar vatn
  • 1 tsk salt
  • pipar eftir smekk
  • 2 msk nýkreistur sítrónusafi
  • jógúrt til að setja ofan á súpuna
  • linsoðið egg skorið og sett ofan á
  • kryddjurtir til að skreyta (má sleppa)

Aðferð

  1. Hitið olíu yfir meðalhita í stórum potti. Steikið lauk í ca 5 mín, síðan hvítlauk í 1 mín til viðbótar. 
  2. Bætið sveppum og steikið í 5 mínútur til viðbótar. 
  3.  Bætið salvíu, papriku og coconut aminos. 
  4. Lækkið hitann og steikið svolítið lengur. 
  5. Takið til hliðar 1/2 til 1 bolla af sveppamixúrunni. 
  6. Setjið restina í blandara og bætið vatni þar til nær yfir mixtúruna – blandið vel saman.
  7. Setjið allt aftur saman í pottinn ásamt sítrónu, salti og pipar, sjóðið í 3-5 mínútur við miðlungshita.  
  8. Toppið súpuna með jógúrt og eggi, etv niðurskornum kryddjurtum. 
 
Súpan geymist í ísskáp í 3-4 daga. 

Verði þér að góðu!

Deila uppskrift: