Stökkt fennel salat

Salat þetta slær alltaf í gegn, eða allavega þegar við erum með góð hráefni en ég reyni að kaupa allt lífrænt. Fennelið hef ég getað keypt lífrænt á FoodCoop.is en þar sem avókadóið er í þykku hýði þá skiptir það aðeins minna máli. Aðalatriðið að hann sé mátulega þroskaður, ekki of harður og ekki byrjaður að þrána. Ég borða salatið bæði sem hádegismat og hef það einnig stundum sem forrétt eða meðlæti í matarboði. 

Innihald

Aðferð

  1. Skerið stilkana af fennelinu, skiptið því í tvo helminga og skerið burtu kjarnann. Sneiðið í þunna strimla
  2. Steinhreinsið avókadó og skerið í 1 cm bita
  3. Blandið saman í skál ásamt olíu, sítrónu, myntu og salti eftir þörfum. 

 

Verði þér að góðu!


Fleiri uppskriftir

Deila uppskrift: