Sítrónu kasjú mæjó og djöflaegg

Mjög gott að blanda saman mæjóinu við rauðuna, krydda með salt, pipar og papriku. 

 

½ bolli kasjúhnetur lagðar í bleyti í 3-4t

½ bolli vatn

3 msk nýkreistur sítrónusafi

1 tsk sjávarsalt

1 bolli ólífuolía

 

Hvernig: 

Maukið kasjúhnetur, vatn, sítrónusafa og salt í blandara þangað til silkimjúkt.

Hellið olíu inn varlega. 

Geymist í krukku í ísskáp í allt að 1 mánuð. 

Til að gera djöflaegg sjóðið egg þar til harðsoðin. Blandið hluta af mæjóinu við rauðuna ásamt salti, pipar og papriku. Stráið paprikudufti yfir og skreyti e.t.v. með kryddjurt. 

Deila uppskrift: