Sætkartöflu- og kínóabuff

Buffin eru alltaf vinsæl og avókadó dressingin sló meira að segja í gegn hjá fjölskyldumeðlimnum sem er lítið fyrir avókadó og annað grænmeti.

Fyrir buffin:

  • 2 bollar eldað kónóa
  • 2 miðlungs stórar sætar kartöflur, soðnar og maukaðar
  • 1/2 bolli möndlu- eða kjúklingabaunahveiti
  • 1/2 bolli smátt saxaður vorlaukur
  • 1/4 bolli ferkst saxað kóríander
  • 2 tsk hvítlauksduft
  • 1 tsk kúmen
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Ólífuolía til steikingar (mæli með frá Olifa)


Avókadó dressing

  • 2 þroskaðir avókadó
  • 1 bolli óbragðbætt grísk jógúrt (ég nota vegna)
  • 2 hvítlauksrif pressuð
  • Safi úr 1-2 límónum (eftir hve mikið kemur úr þeim)
  • Salt og pipar eftir smekk


Blandið saman buff-innihaldsefnum í stórri skál þar byrjar að loða saman. Mótið buffin í ca 5-7 cm þvermál (ég nota ísskeið), hellið olíu á pönnu (t.d. járnpönnu) og steikið í 4-5 mín á hvorri hlið þar til stökk og gullinbrún. 

Til að búa til dressinguna er avókadó stappað og innihaldefnum blandað vel saman í skál. 

Verði ykkur að góðu!


Deila uppskrift: