Rjómakennd spergilkálsúpa

Súpa þessi er ágætlega saðsöm og hentar vel sem “detox” máltíð, en uppskriftin kemur frá vinkonu vinkonu minnar sem býr í Bandaríkjunum, en báðar vinna í “functional medicine” geiranum. Hægt er að hrista hana fram úr erminni, held ég að sé ekki ofsögum sagt því súpan er einföld of fljótleg. Grænmetið reyni ég alltaf að hafa lífrænt og versla það gjarnan á foodcoop.is

Innihald

  • 1 stórt spergilkál, skorið í litla bita
  • 2 msk ólífu olía (eða kaldpressuð kókosolía)
  • 1 gulur laukur, sneiddur
  • 2 geirar hvítlaukur (ég nota stundum meira)
  • 1 dós/bolli cannellini baunir, skolaðar og sigtaðar
  • 1,5 bolli grænmetiskraftur
  • 1 bolli vatn


Aðferð

  1. Gufusjóðið spergilkál bitana þar til þeir verða djúp grænir á lit, u.þ.b. 3 mín. Setjið á disk og kælið. Geymið 0,5 bolla til skreytingar. 
  2. Hitið olíu í djúpum potti yfir miðlungs hita. Steikið lauk og hvítlauk þar til verða glærleitir, u.þ.b. 6 mín. Athuði að brúna EKKI.
  3. Bætið baunum, grænmetiskrafti og vatni í pottinn. Náið upp suðu. Fjarlægið af hitanum og bætið spergilkáli í pottinn. Maukið í pottinum eða blandara þar til áferðin er orðin silkimjúk. 
  4. Kryddið með salt og pipar eftir smekk. 
  5. Skreytið með brokkólí blómunum og extra virgin ólífu olíu (t.d. frá Olifa)


Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift: