Graskerssúpa

Þessi er svakalega fljótleg og einföld með litlu uppvaski ef þið eigið blandara, sem hentar mér vel eftir langan vinnudag. Uppskriftin hér var gerð eftir að ítalskir vinir okkur gáfu okkur grasker úr garðinum sínum. Ég notaði hýðið með en það var grænt svo liturinn á súpunni varð ekki alveg jafn girnilegur, þótt súpan smakkaðist vel.  Svo bætti ég bara við því grænmeti sem ég átti til í ísskápnum en það gleður mig alltaf að geta nýtt afganga og komast hjá því að henda mat. Það má því nota í raun hvaða grænmeti sem er með graskerinu. Til að fá meira prótein gæti verið sniðugt að bæta við baunum. 

Innihald

  • 1 grasker 
  • kúrbítur
  • tómatar
  • nokkur hvítlauksrif
  • oreganó og sage (eða timian)
  • salt og pipar
  • 2 msk ólífuolía (ég nota steikingarolíu frá Olifa) 

Aðferð
  1. Grænmeti skorið niður og sett á bökunarplötu. 
  2. Kryddað með oreganó/sage/timían/salti/pipar eftir smekk. 
  3. Ristað í ofni við 200 gráður celcius í 30 mínútur. 
  4. Set grænmetistenging í blanda og um hálfan lítra af soðnu vatni hellt yfir. 
  5. Síðan grænmeti bætt við og blandað varlega saman, athugið að vegna hitans þarf að vera op á blandaranum annars er hætt við að súpan endi út um allt eldhús (hef reynslu af því). Athugið að það er einnig hægt að mauka með töfrasprota í potti. 
  6. Síðan sett í skálar og skreytt með afgangs grænmeti.
 
Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift: