Grænkál

Geri mikið af þessu

Annað hvort nudda vel með kókosolíu og salta/pipra eftir smekk. Inn í ofn við lágan hita, um 100 gráður þar til stökkt. 

Önnur uppskrift sem er góð: 

  • 1 ½ bolli kasjúhnetur lagðar í bleyti í amk 30 mín, 3-4 tímar fínt. 
  • 1 grænkálshaus
  • 3 msk næringarger (nutritional yest flakes)
  • 2 msk vatn
  • 2 msk laukduft
  • 1 msk ólífuolía
  • Safi úr 1 sítrónu
  • 1 tsk hvítlauksduft 
  • 2 tsk sjáfarsalt flögur, plús auka til að setja yfir. 

 

Rífið í ca 5x5cm bita og hreinsið kálið og þurrkið á t.d. Viskastykki. Mikilvægt að sé þurrt. Setjið í stóra skál eða beint á bökunarplötu

Hreinsið kasjúhnetur vel og blandið við hinum innihaldefnunum þar til kremað í öflugum blandara, bætið vatni ef of þykkt. Hellið yfir kálið og nuddið við í amk mínútu, þar til laufin eru vel þakin. 

Dreifið á á bökunarplötu 1-2 eftir hve vel kemst fyrir og bakið í 25-35 mín þar til gullinbrúnt og flögurnar stökkar en ekki brenndar. 

Takið út og stáið salti eftir þörfum.

Deila uppskrift: