Strákarnir mínar elskuðu þessa súpu þegar þeir voru litlir. Við kölluðum hana drekasúpu því engiferið í henni rífur vel í bragðlaukana og hálsinn; tilfinningin við að drekka súpuna verður eins og að spúa eldi ef maður getur ímyndað sér hvernig það er. Uppskriftin er fengin úr bókinni Raw Food/Real World og hefur lítillega verið breytt hér.
Gulrætur og engifer sett í safapressu og svo allt sett í blandara ásamt restinni í u.þ.b. 1 mínútu. Upplagt að endurnýta glerflöskur (t.d. af tómatsósu) og setja afganginn í þær til að njóta næsta dag.
Deila uppskrift: