Sítrónu kasjú mæjó og djöflaegg

Sítrónu kasjú mæjó og djöflaegg Mjög gott að blanda saman mæjóinu við rauðuna, krydda með salt, pipar og papriku. ½ bolli kasjúhnetur lagðar í bleyti í 3-4t ½ bolli vatn 3 msk nýkreistur sítrónusafi 1 tsk sjávarsalt 1 bolli ólífuolía Hvernig: Maukið kasjúhnetur, vatn, sítrónusafa og salt í blandara þangað til silkimjúkt. Hellið olíu inn varlega. Geymist í krukku í ísskáp í allt að 1 mánuð. Fleiri uppskriftir Deila uppskrift:
Gazpacho

Aftur á forsíðu Gazpacho Þessi súpa skilur hún eftir dásamlega vellíðan í kroppnum. Svo er hún líka ómótstæðilega góð – allt árið en sérstaklega á sumrin þegar heitt er í veðri. Litlar hendur geta vel hjálpað til við að skera niður grænmetið og hræra í skál en uppskriftin er einföld og fljótleg. HRÁEFNI 3 bollar vatnsmelóna, steinhreinsuð og maukuð í blandara 1 bolli vatnsmelóna, brytjuð smátt, og steinhreinsuð 1 bolli smátt skornir tómatar 1 bolli smátt skorin agúrka. 1/2 bolli smátt skorin rauð paprika 2 msk límónusafi 1 tsk engifer, rifið smátt 1/2 (nokkri millimetrar ef sterkt) smátt saxað rautt chili 1 vorlaukur, hvíti stilkurinn og 3 cm af græna hlutanum 1 lúka af saxaðri myntu 1 tsk sjávarsalt Nýmalaður svartur pipar AÐFERÐ Bætið öllu í glerskál og hrærið. Saltið og piprið eftir smekk. Njótið! Fleiri uppskriftir Deila uppskrift: