Súpa þessi er í uppáhaldi núna hjá öllum í fjölskyldunni, en ég elska fljótlegar og góðar súpur. Grunnurinn er fenginn frá vefnum loveandlemons, en hér er hún í aðeins breyttri mynd.
Innihald
1 blómkálshaus
Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
2 skalottulaukar
4 hvítlauksgeirar, óflysjaðir
4 bollar grænmetiskraftur
1 dós Cannellini baunir
Lauf frá 5 tímían stönglum
3 msk extra virgin ólífuolía, ásamt auka fyrir skreytingu
1 msk coconut amino eða hvítt miso past
1 tsk Dijon sinnep
1 msk nýkreistur sítrónusafi, ásamt meiru eftir smekk
Smákál til að skreyta
Aðferð
Hitið ofn í 205 gráður celcius og setjið bökunarpappír á bökunarplötu
Skerið blómkálið í bita og flytjið á bökunarplötuna. Skvettið ólífuolíu yfir og kryddið með salt og pipar. Blandið vel saman og dreifið jafnt. Pakkið lauknum í álpappír ásamt skvettu af ólífuolíu og klípu af salti, setjið á bökunarplötuna með blómkálinu. Ristið í 30-35 mínútur eða þar til blómkálið byrjar að brúnast.
Í stórum potti er grænmetiskrafturinn hitaður upp að suðu yfir miðlungshita. Bætið baunum, ristaða blómkálinu, skalottulauk, flysjuðum hvítlauk og tímían út í pottinn. Setjið lok yfir og látið sjóða í 15 mínútur. Kælið svolítið og flytjið í blandara ásamt ólífuolíu, coconut amino, sinnepi og sítrónusafa. Blandið þar til silkimjúkt. Kryddið eftir smekk með salti og sítrónusafa.
Skreytið með grænum smájurtum og ólífuolíu, ef vill.