Appelsínugulur draumur

Þessi draumur inniheldur gullnámu af beta-karóteni sem hjálpar húðinni að mæta sólargeislum og kuldabola. Til að gera hana sterkari geturð bætt við meira engifer. 

  • 1 rauðlaukur (eða venjulegur laukur) saxaður
  • 3 stór hvítlauksrif – fínt skorin
  • 4 cm engifer – rifið
  • 2 msk kókosolía
  • 2 msk rautt Thai karrý paste
  • 1 stór sæt kartafla – skorin smátt 
  • 3 stórar gulrætur – skornar smátt
  • 1 butternut grasker skorið smátt
  • 1 bolli rauðar linsubaunir – skolað þrjár umferðir, henda ónýtum
  • 2 bollar vatn
  • 1 msk grænmetiskraftur
  • 1 dós 400ml kókosmjólk
  • Safi úr einni límóu

Ofan á

  • Spíruð grænkersfræ
  • Valnhetur saxaðar
  • Kóríander (má sleppa)

 

Hitið kókosolíu í stórum potti á vægan hita og bætið lauk. Hér gildir að steikja hægt og rólega við lágan hita. Þegar laukurinn er farinn að mýkjast bætið þá hvítlauk og engifer út í og látið malla í um mínútu. Þá er Thai karrý bætt útí og hrært vel í. Sætri kartöflu, gulrótum og graskeri næst bætt við og hrært vel saman. Því næst linsur og grænmetiskraft. Strax á eftir er vatni og kókosmjólk bætt út í. 

Sjóðið við vægan hita í um 25 mín og hrærið reglulega svo brenni ekki við. Þegar grænmetið merst auðveldlega við kantana er rétturinn tilbúin. Maukið með handsprota eða í blandara eða merjið gróflega við pottinn. Að lokum er safa úr límónu hrært við. 

Blandið saman graskerfsfæjum og um handfylli af valhnetum og stráið yfir til skrauts. Einnig gott að hafa kóríander.

Deila uppskrift: