Þessi er svakalega fljótleg og einföld með litlu uppvaski ef þið eigið blandara, sem hentar mér vel eftir langan vinnudag. Uppskriftin hér var gerð eftir að ítalskir vinir okkur gáfu okkur grasker úr garðinum sínum. Ég notaði hýðið með en það var grænt svo liturinn á súpunni varð ekki alveg jafn girnilegur, þótt súpan smakkaðist vel. Svo bætti ég bara við því grænmeti sem ég átti til í ísskápnum en það gleður mig alltaf að geta nýtt afganga og komast hjá því að henda mat. Það má því nota í raun hvaða grænmeti sem er með graskerinu. Til að fá meira prótein gæti verið sniðugt að bæta við baunum.
Innihald
Deila uppskrift: