Saag Tófú

Mæðgurnar Hildur Ársælsdóttir og Sólveig Eiríksdóttir eru einar af mínum uppáhalds. Þessi uppskrift er eftir þær og smakkast alltaf mjög vel. Ég breytti aðeins innihaldinu en það er eiginlega ekki hægt að klúðra honum. Síðan er hann súper einfaldur og fljótlegur, sem hentar vel á löngum vinnudögum. Ef allt er klárt þá tekur varla meira en hálftíma að elda hann.  

Innihald

  • 800g tófú
  • 3 msk kókosólía (lífræn)
  • 2 tsk túrmerik
  • 2 laukar, skornir í bita
  • 4 hvítlauksrif
  • 200g spínat
  • 2 tsk cumin
  • 1 tsk garam masala
  • 2 tsk sambal olek (eða annað kryddað chilimauk)
  • 2 tsk kókospálmasykur
  • 1 teningur grænmetiskraftur
  • 1 tsk sjávarsaltflögur
  • 1 msk rifið engifer (ég kaupi lífrænt og frysti, þá er auðveldara að rífa niður)
  • 2 msk kreistur sítrónusafi 
  • 400 ml kókosmjólk í dós
  • 2 dl vatn
  • Hrísgrjón
 
Aðferð
  1. Byrjið á að léttkreista vökva úr tófúinu með viskastykki. 
  2. Skerið tófú í 1x1cm teninga og steikið á pönnu í kókosólíu í um 10 mín eða þar til það er orðið gyllt á litinn.
  3. Kryddið með túrmeriki og steikið í 2-3 mín til viðbótar. 
  4. Setjið hrísgrjón yfir. 
  5. Á meðan tófúið steikist og hrísgrjónin sjóða er restin af innihaldsefnunum sett í matvinnsluvél og blandað vel saman. Það er gott að setja spínatið í nokkrum hlutum. 
  6. Hellið yfir tófúið og látið malla í nokkrar mínútur. 

Verði ykkur að góðu!
 
Njótið vel!

Deila uppskrift: