Ítölsk Minestrone

Árið sem ég byrjaði í læknanáminu keypti ég mína fyrstu íbúð í kjallara við Blönduhlíð 4. Peningar voru af skornum skammti og því gerði ég gjarnan góðan skammt af þessari súpu sem ég nærðist á í nokkra daga. Súpunni kynntist ég hjá ítalskri fjölskyldu sem ég var Au pair hjá og því upplifi ég alltaf ákveðna nostalgíu þegar ég elda hana. Uppskriftin er passleg fyrir um 4-5 manns, eftir hve matgrannir menn eru. 

Innihald

  • 2 msk ólífuolía (ég nota steikingarolíu frá Olifa)
  • 2-3 laukar (ég nota 3 því lífrænu eru oft minni)
  • 3 gulrætur
  • 4 sellerístönglar
  • 1 tsk sjávarsalt og meira eftir smekk
  • Malaður svartur pipar
  • 4 hvítlauksgeirar
  • 1 dós tómatar í bitum
  • 250 g blandaðar baunir, skolaðar og lagðar í bleyti 6-8 tímum áður
  • 1/2 kúrbítur eða 1 bolli strengjabaunir 
  • 4 bollar grænmetiskraftur
  • 1 tsk þurrkað oregano
  • 1 tsk þurrkað timían
  • Parmesan ostur til að rífa yfir súpuna
 
Aðferð
  1. Hitið olíu í stórum potti yfir meðalhita. Bætið lauk, gulrótum, sellerí, salti og nokkrum umferðum af möluðum pipar. Steikið í 8 mínútur og hrærið reglulega þar til byrjar að mýkjast og án þess að brúnist. 
  2. Bætið hvítlauk, tómötum, kúrbít, baunum, grænmetiskrafti, oregano og timían. Setjið lok yfir pottinn og látið sjóða í 1-2 klst þar til baunirnar eru mjúkar. Bætið reglulega meira vatni í pottinn eftir þörfum og hrærið vel. 
  3. Smakkið til og kryddið meira eftir smekk.
  4. Rifnum parmesan er stráð yfir heita súpuna. 
 
Njótið vel!

Deila uppskrift: