Granóla með dökku súkkulaði

Þetta gómsæta granóla klárast alltaf hratt hjá okkur, enda svo miklu betra en það sem er keypt út í búð að okkar mati. 

  • 2 bollar grófir hafrar
  • 2 bollar kókosflögur
  • 2/3 bollar graskersfræ
  • 1/2 bolli sólblómafræ
  • 1/2 bolli sesamfræ
  • 1/2 bolli chia fræ
  • 1 tsk sjávarsalt
  • 1 tsk vanilluduft 
  • 2/3 bolli kókosolía, brædd í vatnsbaði eða við vægan hita í örbylgju
  • Safi úr hálfri appelsínu
  • 1/8-1/4 bolli hlynsýróp, eftir hve sætt þú vilt hafa granólað
  • 1 plata 70% súkkulaði, saxað í litla bita

 

Aðferð:  

  1. Blandið þurrefnum vel saman breiðri skál
  2. Blandið saman bræddri kókosolíu, appelsínusafa og hlynsýrópi
  3. Hellið vökvablöndunni yfir þurrefnin og blandið vel saman
  4. Setjið bökunarpappír á plötu og dreifið vel úr granólanu
  5. Bakið við 150°C þar til gullinbrúnt og hrærið reglulega til að brúnist jafnt
  6. Þegar granólað hefur kólnað er súkkulaðinu blandað vel við 
 
Njótið!
 

Deila uppskrift: