Blómkálssúpa með sítrónu

Súpa þessi er í uppáhaldi núna hjá öllum í fjölskyldunni, en ég elska fljótlegar og góðar súpur. Grunnurinn er fenginn frá vefnum loveandlemons, en hér er hún í aðeins breyttri mynd.  

Innihald

  • 1 blómkálshaus
  • Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
  • 2 skalottulaukar
  • 4 hvítlauksgeirar, óflysjaðir
  • 4 bollar grænmetiskraftur
  • 1 dós Cannellini baunir
  • Lauf frá 5 tímían stönglum
  • 3 msk extra virgin ólífuolía, ásamt auka fyrir skreytingu
  • 1 msk coconut amino eða hvítt miso past
  • 1 tsk Dijon sinnep
  • 1 msk nýkreistur sítrónusafi, ásamt meiru eftir smekk
  • Smákál til að skreyta


Aðferð

  1. Hitið ofn í 205 gráður celcius og setjið bökunarpappír á bökunarplötu
  2. Skerið blómkálið í bita og flytjið á bökunarplötuna. Skvettið ólífuolíu yfir og kryddið með salt og pipar. Blandið vel saman og dreifið jafnt. Pakkið lauknum í álpappír ásamt skvettu af ólífuolíu og klípu af salti, setjið á bökunarplötuna með blómkálinu. Ristið í 30-35 mínútur eða þar til blómkálið byrjar að brúnast. 
  3. Í stórum potti er grænmetiskrafturinn hitaður upp að suðu yfir miðlungshita. Bætið baunum, ristaða blómkálinu, skalottulauk, flysjuðum hvítlauk og tímían út í pottinn. Setjið lok yfir og látið sjóða í 15 mínútur. Kælið svolítið og flytjið í blandara ásamt ólífuolíu, coconut amino, sinnepi og sítrónusafa. Blandið þar til silkimjúkt. Kryddið eftir smekk með salti og sítrónusafa. 
  4. Skreytið með grænum smájurtum og ólífuolíu, ef vill. 


Verði þér að góðu!

Deila uppskrift: