Chai latte

Chai latte er alltaf hressandi drykkur þegar þig langar í eitthvað bragðgott en ekki mikið koffín og því geri ég hann ósjaldan seinnipart dags þegar ég vil ekki mikið af koffíni í kerfið. Þessi uppskrift er afar einföld og fljótleg, en í grunninn nota ég nota yfirleitt sojamjólk sem er án viðbætts sykurs. Uppskriftin er fyrir tvo, eða einn og geyma helminginn í kæli fram á næsta dag. 

  • 3 bollar mjólk
  • 2 svartir tepokar
  • 1 tsk malaður kanill
  • 1/2 tsk malað engifer
  • 1/2 tsk malaður negull
  • 1/2 tsk malaðar kardamommur
  • 1/4 tsk vanilluduft
  • 1-2 tsk hunang

 

Ofan á

  • Flóuð mjólk
  • kanill

 

Hitið mjólkina í litlum potti yfir miðlungs hita. Þegar suða kemur upp slökkvið á hitanum og bætið tepokunum út, látið liggja í 4-5 mínútur. Fjarlægið tepokana með mjórri skeið og náið vökva úr pokunum t.d. með því að vefja bandinu yfir skeiðina.  

Kveikið aftur undir pottinum og stillið miðlungs hita. Bætið kryddunum út í og hrærið vel þar til teið er orðið heitt. 

Til að það setja punktinn yfir i-ið flóið smá mjólk og skreytið með kanil. 

Athugaðu að ýmsar tegundir eru til af svörtu tei, allt frá Darjeeling til English breakfast. 

Deila uppskrift: