Sveppir eru einskonar ofurfæða, þeir eru næringarríkir en hitaeiningasnauðir og hafa verið notaðir sem lyf í þúsundir ára. Þeir innihalda m.a. vítamín B2, B3, B5, B9 (fólat), D og steinefnin fosfórus, kalíum, kopar, magnesíum, selen og sink. Kalíum getur minnkað spennu í æðum og lækkað blóðþrýsting. Glútamat finnst einnig ríkulega í sveppum, en amínósýra þessi styrkir þarmavegginn og minnkar líkur á að óæskileg efni finni leið inn í líkamann gegnum þarmavegginn og ræsi með því ónæmiskerfið. Í heilanum er glútamat eitt mikilvægasta taugaboðefnið sem örvar taugafrumur og gegnir lykilhlutverki í lærdóm, minni og vitsmunagetu. Til að toppa sig þá gefur glútamat einnig hið svokallaða umami bragð sem er gjarnan kallað fimmta bragðskynið (samhliða sætt, súrt, salt og bitur).
Súpa þessi er afar bragðgóð og meira að segja elska unglingsdrengirnir mínir hana. Hún hentar líka vel fyrir þá sem eru að klást við candida-sýkingu.
Innihald
Aðferð
Verði þér að góðu!
Deila uppskrift: