Kínóaorkubitar

Orkan vill oft detta niður seinni part dags og þá er gott að grípa í þennan orkubita, sem eru stútfullur af næringarefnum. Hann kemur sér einnig vel í útivistinni eða á ferðalögum. 

  • 4 msk kókosolía (brædd)
  • ¼ bolli hnetusmjör
  • ¼ bolli kókos sýróp eða döðlusýróp
  • 1 tsk kanill
  • ½ tsk vanilluduft
  • 1 tsk saltflögur
  • 4 msk maca duft (má sleppa)
  • 2 msk chia fræ
  • 4 bolli soðið kínóa
  • 1 bolli kókosmjöl
  • 1 bolli rolled/grófir hafrar
  • 4 msk kollagenduft
  • 1 bolli saxaðar hnetur (t.d. valhnetu, afhýddar möndlur, brazilíu)
  • 70% súkkulaði hálf plata, söxuð.

 

Aðferð:

1. Hitið ofn í 180 gráður celsíus. 

2. Bræðið kókosolíu í glerskál við miðlungshita í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði

3. Blandið hnetusmjöri við kókosolíuna og  hrærið síðan sýrópi, kanil, vanillu, salti, maca og chia fræjum við. 

4. Í stærri skál blandið saman kínóa og restinni af innihaldsefnum. 

5. Hrærið saman blautu og þurru innihaldsefnunum. 

Bakið í 30-40 mín eða þar til gullinbrúnt. 

Verði ykkur að góðu!

Deila uppskrift: