Þetta sykurlausa og glúteinlausa bananabrauð slær alltaf í gegn um helgar. Dásamlegt ylvolgt með smjöri.
Undirbúningstími um 10 mín, bökunartími 35-40 mín. Samtals 45-50 mín.
Hitið ofn í 180°C. Setið í blandara mjólk (byrja á hálfum bolla og bæta við ef þurrt), döðlur og hnetusmjör og blandið vel saman þangað til silkimjúkt. Bætið síðan chia fræjum og leyfið þeim að liggja í bleyti á meðan þú klárar restina.
Stappið banana á disk og setjið til hliðar. Bætið þurru innihaldsefnunum í stóra glerskál og blandið vökvanum úr blandaranum við. Bætið bönunum og valhnetum og hrærið þangað til er allt vel blandað saman. Setjið deigið í brauðform og skreytið með þverskornum banana og grófsöxuðum valhnetum. Bakið í 40-50 mínútur þangað til viðarprik kemur hreint út eftir að því er stungið í miðju brauðsins.
Kælið áður en þið takið brauðið úr forminu og njótið.
Deila uppskrift: