Pönnubakaður kjúklingur með sætkartöflukássu

Stökkt skinn og einfaldur bragðgóður keimur fer vel með bragðlaukana. Geymdu afgangsbein og frystu til að gera kjúklingasoð síðar. 

  • 350 g sæt kartafla
  • 1 laukur
  • 2 gulrætur
  • 3 msk ólífu olía
  • Lauf frá 4 stilkum af fersku timian
  • Salt og pipar
  • 1 ½ upplæri með beini og skinni
  • 1 ½ sæt paprika
  • ½ sítróna

 

Hitaðu ofninn í 230 gráður celcius og settu 25cm járnpönnu inn í hann. 

Skerið kartöflur, lauk og gulrætur í um 1 cm bita. Dreifið 2 msk af olíu yfir og kryddið rausnarlega með salt og pipar þannig að þekji vel. Takið blöðin af timian stilknum og stráið yfir grænmetið. 

Fjarlægið járnpönnuna úr ofninum og fluttu grænmetið á pönnuna. Setjið aftur inn í ofn og ristið í efri grind í 15 mínútur. Hrærið í með með spaða þegar um helmingur af tímanum er liðinn. 

Þá er að beinhreinsa með beittum hníf. Gott að vera í sérstökum hanska. Kryddið kjúklinginn með papriku, salti og pipar. Hitið restina af olíunni á nonstick pönnu við miðlungs hita. Látið skinnið á kjúklingnum snúa niður og steikið í 10 mínútur, snúið við þegar hliðarnar á skinninu eru fallega brúnaðar. 

Takið pönnuna úr ofninum og hrærið aftur í. Flytjið kjúklinginn með töng í járnpönnuna og setjið ofan á grænmetið með skinnið upp og komið aftur fyrir í ofninum. Eldið í um 10 mínútur eða þar til kjúklingurinn er tilbúinn. 

Kreistið sítrónu yfir grænmetið og jafnvel safanum sem kom þegar kjúklingurinn var steiktur. 

Berið fram beint af pönnunni.

Deila uppskrift: