Það var fyrir rúmum tveimur árum að við prófuðum avókadódrykk á Joe & The Juice í Kaupmannahöfn. Kannski ekki til stórtíðinda nema að það má segja að við urðum háð drykknum. Verðum eiginlega að fá hann á hverjum morgni. Við reyndar breyttum honum og gerðum hann að okkar smekk. Nú er drykkurinn útbúinn á hverjum einasta morgni. Börnin eru líka sjúk í drykkinn og það er ósjaldan keppst um að fá restina. Stundum útbúum við hann og tökum með okkur til að hafa á ferðinni. Það góða við drykkinn er að hann er saðsamur og að sjálfsögðu hollur. Hér er uppskriftin fyrir áhugasama en hún dugar fyrir fjóra:
Allt sett í blandara og blandað vel saman. Nammi namm…
Deila uppskrift: