Fræðslumyndbönd

Nikótín – myndband 1

Um nikótin

Nikótín – myndband 2

Frekju-dósin

Nikótín – myndband 3

Að hætta

Nikótín – myndband 4

Skaðsemi sígarettu-reykinga

Nikótín – myndband 5

Rafsígarettur

Nikótín – myndband 5

Munntóbak

Samræður fyrir “Martröð í munni”

Spurningar til að efla skilning og gagnrýna hugsun

Myndband 1: Hvað er nikótín og hvernig breytir það heilanum?

1.     Hvað gerir nikótín í líkamanum?

·      Taugaeitur

·      Örvandi efni

·      Veldur fíkn

2.     Hvaða vörur innihalda nikótín?

·      Nikótínpúðar

·      Veip/rafrettur/rafsígarettur

·      Sígarettur

·      Neftóbak

3.     Hvernig hefur nikótín áhrif á heila unglinga?

·      Nikótín fer mjög hratt upp í heilann (innan 10-20 sekúndna) og ræsir heilann með því að losa m.a. adrenalín og dópamín, sem veldur stuttri vellíðan eða aukinni orku, meiri einbeitingu í nokkrar mínútur.

·      Með tímanum minnkar þín náttúrulega dópamínframleiðsla og dópamínviðtakar (sem ræsa taugafrumurnar) virka verr. Það þýðir að þú þarft alltaf meira og meira nikótín til að losa dópamín. Því verður erfiðara að finna fyrir ánægju og þú þarft núna nikótín til að líða eðlilega.

·      Nikótín losar adrenalín og kortisól og virkjar möndluna sem er kvíðastöðin í heilanum. Það veldur kvíða- og streitu. Því meira sem þú notar, því meiri hætta á kvíða og streitu.

4.     Hve lengi er heilinn að þroskast – og af hverju skiptir það máli?

·      Heilinn þroskast til 25-30 ára

·      Unglingsheili er sérstaklega næmur fyrir nikótíni og myndar hraðar taugabrautir sem tengjast fíkn

5.     Hvaða fráhvarfseinkenni koma fram þegar nikótín fer úr líkamanum?

·      Pirringur

·      Einbeitingarleysi

·      Eirðarleysi

·      Pirringur

·      Depurð

·      Reiði

·      Kvíði

·      Höfuðverkur

·      Svefntruflun

·      Lífið hættir að vera skemmtilegt án nikótíns

 

Myndband 2: Hvað er fíkn og hvaða áhrif hefur nikótín á heilann

1.        Hver eru helstu merki þess að einhver sé orðinn háður nikótíni?

·      Notar nikótín til að minnka vanlíðan

·      Heldur áfram að nota þrátt fyrir að vilja hætta

·      Nikótín eru orðið að daglegri venju (norm), t.d. fyrsta hugsunin þegar þú vaknar

2.        Hversu lengi er nikótín í líkamanum?  

·      Helmingur nikótíns brotnar niður á1-2 klukkustundum og þá minnkar virkni þess, t.d. losnar minna dópamín sem lætur þér líða verr

·      Hvaða þýðingu hefur það fyrir löngun og fráhvarfseinkenni yfir daginn? Þú þarft stöðugt að nota nikótín til að líða eðlilega

3.        Hvað er mandlan (amygdala) og hvernig hefur nikótín áhrif á hana?

·      Mandla tengist ótta, kvíða og lætur þig bregðast hratt við tilfinningum

·      Nikótín getur aukið virkni möndlunnar og aukið þannig kvíða. Það getur auk þess látið þig finna fyrir allskonar óþægilegum tilfinningum

·      Nikótín ræsir einnig möndluna gegnum streituhormónið kortisól

·      Með því að hafa bein og óbein áhrif á möndluna eykur nikótín líkur á kvíðaröskun, ofsakvíða og þunglyndi

4.        Hvernig getur nikótín truflað framheilann?

·      Framheilinn stjórnar m.a. einbeitingu, dómgreind og tilfinningastjórnun. Það Nikótín veikir virkni framheilans og því verður erfiðara að halda athygli og einbeita sér. Þú getur orðið hvatvísari og haft minni sjálfstjórn.

·      Það verður einnig erfiðara að stjórna tilfinningum sínum

·      Líklegra að gera eitthvað sem maður sér eftir

5.        Hvers vegna er svefn sérstaklega viðkvæmur fyrir nikótíni?

·      Þú þarft að sofa í um 8-9 klukkustundi til að líkaminn verði sem hraustastur og  best er að sofna á sama tíma (1 klst til eða frá)

·      Nikótín styttir djúpsvefn, sem getur haft áhrif á vöxt, endurheimt og ónæmiskerfið.

·      Nikótín truflar einnig draumsvefn (REM-svefn) sem hefur áhrif á tilfinningar, nám og minni.

·      Nikótín er örvandi efni og heldur heilanum “vakandi”, þú sefur verr og vaknar oftar.

Myndband 3: Að hætta nikótíni og auka eigið dópamín

1.     Hver getur orðið háður?

·      Hver sem prófar getur orðið háður – en sumir eru viðkvæmari.

2.     Hvað eykur líkur á nikótínfíkn?

·      Að byrja ungur

·      Að eiga foreldra sem nota nikótín

·      Félagsþrýstingur og samfélagsmiðlar

·      Að hafa greinst með ADHD, kvíða, þunglyndi

·      Lélegur eða lítill stuðningur frá fjölskyldu eða vinum

·      Samfélag þar sem nikótín er viðurkennt sem eðlileg neysluvara

3.     Hvernig hefur nikótínnotkun móður áhrif á ófætt barn?

·      Auknar líkur á fíkn síðar á ævinni

·      Áhrif á heilaþroska fóstur og ýmsum sjúkdómum

4.     Hvað eykur líkur á að nota nikótín lengi?

·      Að byrja snemma sem leiðir til þess að taugabrautir slípast fyrir fíkn

5.        Hvernig getur fólk hætt að nota nikótín á skilvirkan hátt?

·      Fyrsta skrefið að ákveða “af hverju vil ég hætta?”

·      Faglegur stuðningur: læknir, hjúkrunarfræðingur, ráðgjafi

·      Minnka smám saman eða hætta strax – eftir aðstæðum

·      Vita að fráhvörf eru tímabundin, oft 3-7 daga, sjaldan meira en tvær vikur

6.        Hvernig getum við aukið eigið dópamín – á heilbrigðan hátt?

·      Góður svefn. Hvenær ferð þú að sofa?

·      Hreyfing. Hvað finnst þér skemmtilegasta hreyfingin?

·      Borða hollt. Hugsaðu um fæði sem kemur beint úr náttúrunni

·      Vera úti í morgunbirtunni og þegar sólin er hátt á lofti

·      Slaka reglulega á, sinna áhugamálum, osfrv

·      Köld sturta eða pottur

·      Annað?

Gagnrýn hugsun og umræðuspurningar

·      Af hverju heldur þú að ungt margir unglingar prófi nikótín í fyrsta skipti?

·      Hvaða áhrif gæti nikótín haft á svefn, einbeitingu og líðan í skóla?

·      Hvernig hafa samfélagsmiðlar og “trend” áhrif á hvort ungt fólk byrji að nota nikótín?

·      Hvernig gæti nikotínfíkn haft áhrif á vináttu, heimilislíf eða íþróttir?

Spurningar um hegðun og val

·      Í hvaða aðstæðum gæti unglingur freistast til að nota nikótín? Hvað væri betri lausn?

·      Hvaða úrræði og aðstoð eru til fyrir þá sem vilja hætta?

·      Hvernig myndir þú bregðast við ef vinur/vinkona byði þér nikótín?

·      Af hverju skiptir máli að vita hvernig nikótín virkar á heilann?

·      Hvernig getur þú hjálpað öðrum að verða upplýstari?

Hugmyndir að verkefnum

·      Gerðu stutta glærukynningu eða plakat: “5 hlutir sem nikótín gerir við unglingaheila”

·      Skrifaðu bréf til yngri nemenda um hvað þú vilt að þeir viti áður en þeir prófa.

·      Hlutverkaleikur: hvernig er hægt að segja “nei” á virkan og raunhæfan hátt?